Nám sem nýtist í lífi og starfi
Söngskólinn í Reykjavík bíður upp á hagnýtt nám í raddbeitingu, túlkun og framkomu. Námið er einstaklingsmiðað þar sem nemandinn ákveður sína stefnu; hvort sem það er stóra óperusviðið, rytmíska sviðið eða heilsusamleg raddbeiting sem nýtist í hvaða starfi sem er.
Á miðvikudögum kl. 18:45 eru nemendatónleikar í sal skólans
Á hverjum vetri er sett upp Nemendaópera og sýning hjá Ungdeildinni
Námið við Söngskólann í Reykjavík skiptist í eftirfarandi deildir:
- Ungdeild (8 – 15 ára)
- Almenn deild: Grunn-, Mið- og Framhaldsdeild
- Háskóladeild: Diploma, Einsöngvara- og Söngkennaranám
Námskeið við Söngskólann í Reykjavík:
- 7 vikna söngnámskeið fyrir söngáhugafólk á öllum aldri
- Kórsöngvaranámskeið
- Námskeið fyrir kóra
- Ýmis meistaranámskeið, sem eru opin til áheyrnar
Söngnám við Söngskólann í Reykjavík er lykill að góðri raddheilsu sem nýtist í lífi og starfi