Sigurður Helgi nam píanóleik hjá Ingibjörgu Pálsdóttur og Elinborgu Sigurgeirsdóttur við Tónlistarskóla Vestur-Húnavatnssýslu á Hvammstanga og hjá dr. Marek Podhajski, Daníel Þorsteinssyni og Aladár Rácz við Tónlistarskólann á Akureyri. Hann lauk framhaldsprófi þaðan vorið 2004. Auk þessara kennara ber að nefna píanóleikarann Guðjón Pálsson frá Vestmannaeyjum sem var einn hans helsti áhrifavaldur og fyrirmynd á þessum mótunarárum. Á árunum 2008 hélt Sigurður Helgi til framhaldsnáms við Berklee College of Music í Boston þar sem hann lagði stund á djasspíanóleik, hljómsveitarstjórn og kvikmyndatónsmíðar. Meðal kennara hans voru píanóleikararnir Bob Winter og Neil Olmstead og hljómsveitarstjórinn Isaiah Jackson. Hann lauk þaðan BM gráðu summa cum laude sumarið 2011. Eftir að heim kom hefur Sigurður Helgi starfað jöfnum höndum sem klassískur og rytmískur píanóleikari ásamt því að stjórna kórum, kenna og semja tónlist í frístundum. Hann var meðal annars um skeið rytmískur píanókennari og meðleikari við Listaskóla Mosfellsbæjar. Þá hefur hann komið að söngleikjauppfærslum hjá áhuga- og atvinnuleikfélögum og komið fram á tónleikum víða sem djasspíanisti, meðleikari, stjórnandi eða hljómsveitarmeðlimur. Sigurður Helgi hefur kennt við Söngskólann í Reykjavík frá því í febrúar 2018 og sem söngstjóri Karlakórs Kópavogs frá 2022.