UPPSELT Á FRUMSÝNINGU Á ÖSKUBUSKU! En það eru enn til miðar á hinar sýningarnar: https://tix.is/event/21148/oskubuska
Miðasala er hafin á söngleikinn Öskubusku. Söngleikjadeild Söngskólans í Reykjavík flytur þessa frábæru útgáfu sögunnar sem var síðast var sett á svið árið 1978 í Þjóðleikhúsinu. Grípandi tónlistin er eftir Sigurð Rúnar Jónsson (Didda fiðlu) og stórskemmtilegir söngtextarnir eru eftir Þórarin Eldjárn.
Mikill húmor og gleði einkenna uppsetningu Söngskólans sem verður frumsýnd í Tjarnarbíói 21. mars og hæfileikar nemenda sem taka þátt í sýningunni fá að skína skært.
Einhverjir muna eflaust eftir vinsælli plötu með uppfærslu Þjóðleikhússins. Margir af okkar dáðustu leikurum voru þar í hlutverkum, svo sem Edda Þórarinsdóttir, Árni Tryggvason, Bríet Héðinsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigurður Sigurjónsson.
Söngleikurinn byggir á kvikmynd Jewgeni Schwarz um Öskubusku en sviðsgerð og þýðing er eftir Eyvind Erlendsson. Í uppsetningu Söngskólans í Reykjavík er handritið endurunnið af Þórunni Lárusdóttur.
Allir aldurshópar eru velkomnir á sýninguna.
Mikil spenna er fyrir uppsetningunni, bæði hjá nemendum og kennurum.
Hlutverkaskipan:
Öskubuska: Hanna Tara Björnsdóttir
Kóngur: Þrándur Ingvarsson
Prins: Sigurpáll Jónar Sigurðarson
Stjúpa: María Thelma Smáradóttir
Maríanna og varðmaður: Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir
Anna, samkvæmisdansmálaráðherra og varðmaður: Sara Líf Sigurjónsdóttir
Dísin: Olga María Rúnarsdóttir
Lærisveinn: Sigurður Matthías Sigurðarson
Foringi: Mikael Ólafsson
Þjónn og galdrakarl: Aþena Helgadóttir
Hermaður o.fl.: Jónína St. Gyðudóttir
Hermaður o.fl.: Saga Karolin Szabó
Veislugestur ofl. Karen Ósk Kristjánsdóttir
Nemendur úr Ungdeild Söngskólans í Reykjavík sem taka þátt í sýningunni eru:
Elín Katrín Þórlindsdóttir
Freyja Linnea Einarsdóttir
Harriet Selma Baldursdóttir
Katalija Strzalkowska
Kári Nikulásson
Lísa Vésteinsdóttir Solís
Mia Aníta Briem Paraskevopoulou
Orri Hallfríðar Þórisson
Petra Freyja Baldursdóttir
Listrænir stjórnendur:
Leikstjóri: Þórunn Lárusdóttir
Tónlistarstjóri: Kjartan Valdemarsson
Deildarstjóri og söngþjálfari: Valgerður Guðnadóttir
Hljóð: Þórður Gunnar Þorvaldsson
Ljós: Aron Martin Ásgerðarson
Búningar og sviðshönnun: Valgerður Guðnadóttir, Þórunn Lárusdóttir og leikhópur.
Sviðshreyfingar: Þórunn Lárusdóttir og leikhópur.
Söngskólinn í Reykjavík hefur verið starfandi frá haustinu 1973 og hefur útskrifað fjölmarga söngvara.
Inntökupróf fyrir Söngleikjadeild, Ungdeild og almennar deildir Söngskólans í Reykjavík fyrir skólaárið 2026-2027 fara fram 22. maí 2026. Umsóknir eru opnar á vefsíðu skólans: songskolinn.is.
Sérstakar þakkir:
Nýi tónlistarskólinn
Sigurður Sævarsson
Óperan
Snorri Petersen
Hugleikur
Þórunn Guðmundsdóttir
Messíana Tómasdóttir
Öskubuska
Frumsýning lau. 21. mars 2026 kl. 14:00
- sýning sun. 22. mars 2026 kl. 14:00
- sýning þri. 24. mars 2026 kl. 19:00
Almennt miðaverð: 5.500 kr
Nemendur, öryrkjar og ellilífeyrisþegar: 4.400 kr
Forsölutilboð (til 9.3.2026):
Almennt miðaverð: 4.400 kr
Nemendur, öryrkjar og ellilífeyrisþegar: 3.500 kr


