Þjálfun í sviðsframkomu
Að koma fram á tónleikum er mikilvægur þáttur í söngnámi við Söngskólann í Reykjavík og fá nemendur margvísleg tækifæri til þess.
Nemendatónleikar
Skólinn stendur fyrir reglulegum tónleikum í tónleikasal skólans miðvikudaga kl. 18:30. Þar syngja nemendur ýmist einsöng, dúetta og/eða samsöngva eða sviðssettar senur úr óperum eða söngleikjum. Tónleikarnir eru opnir öllum og aðgangur ókeypis.
Framhaldsprófstónleikar
Í tengslum við framhaldspróf við Söngskólann í Reykjavík þarf nemandi að halda tónleika, sem hluta af prófinu.
Lokatónleikar
Nemendum sem halda áfram námi eftir 7. stig býðst að halda sérstaka lokatónleika og fá umsögn söngkennara.
Söngleikir og óperur
Nemendaópera Söngskólans og Söngleikjadeild setja upp sýningar þar sem nemendur spreyta sig á hinum ýmsu hlutverkum auk þess að fá mikla og góða reynslu í að koma fram. Mikilvægt er að öðlast reynslu í að starfa leikhúsumhverfi þar sem virðing fyrir samnemendum, kennurum og listforminu er í hávegum höfð.