Námsleiðir
Ungdeild
Ungdeild Söngskólans í Reykjavík er fyrir 9 -15 ára nemendur.
Fornám er fyrir 6-8 ára nemendur.
Nám í ungdeild


„Skólinn er eitt af því allra skemmtilegasta sem ég hef stundað“
Ellert Blær
Fyrrverandi nemandi í UngdeildUngdeild er skipt í þrennt
- Fornám (6-8 ára)
- Ungdeild yngri (9-12 ára)
- Ungdeild eldri (13-15 ára)
Lögð er áhersla á rétta og áherslulausa raddbeitingu. Ungdeild yngri og eldri læra undirstöðuatriði í tónfræði, heyrnarþjálfun og nótnalestur. Nemendur koma fram á tónleikum, bæði innan deildarinnar og á heildartónleikum skólans.
Kennslutímar í viku
Söngur / Raddbeiting / Túlkun 20-30 mín. á viku í einkatímum
Samsöngur / Hreyfingar 60 mín. á viku í hóptímum
Tónfræði / Tónheyrn / Nótnalestur 45 mín. á viku í hóptímum (Ungdeild yngri og eldri)
Auk þess (utan stundaskrár):
Á hverjum vetri fer fram mat á námsárangri hvers nemanda, í formi ársumsagnar eða stigsprófs.
Nemendur deildarinnar syngja á tvennum tónleikum á vetri og ýmsum uppákomum tengdum skólanum.
Aðrar kröfur til prófanna eru:
Grunnpróf í tónfræði til að ljúka grunnprófi (3. stigi) í söng.
Samsöngur: ástundun og þátttaka í verkefnum
Sungið á nemendatónleikum 2svar sinnum á vetri
Skólagjöld