Námsleiðir

Grunndeild

Grunndeild Söngskólans í Reykjavík er frábær grunnur fyrir framtíðar söngvara, hvort sem þeir hafa einhvern grunn í tónlist eða ekki. Grunnnámið miðast við fyrstu þrjú stigin í gamla kerfinu, I., II. og III. stigið. Tvisvar á vetri er gefinn kostur á prófum og geta nemendur tekið prófið í áföngum, eða lokið því með einu prófi, Grunnprófi. Nám til Grunnprófs tekur að jafnaði 1-2 ár.

Markmið söngnámsins við Söngskólann í Reykjavík er að kenna nemendum heilbrigða raddbeitingu, túlkun og framkomu. Námið er einstaklingsmiðað þar sem nemandinn ákveður sína stefnu; hvort sem það er stóra óperusviðið, rytmíska sviðið eða heilsusamleg raddbeiting sem nýtist í hvaða starfi sem er. Nemendur eru þjálfaðir í sviðsframkomu og öðlast færni í að syngja fyrir áheyrendur, lesa nótur og skilja tónfræði.

„Félagslífið í Söngskólanum er frábært og fólkið er svo hvetjandi!“

Snjólaug Vera Jóhannsdóttir
Fyrrverandi nemandi í Grunndeild

„Skólinn hefur hjálpað mér mikið í að byggja upp sjálfstraustið mitt og sviðsframkomu!“

Margrét Björk Daðadóttir
Fyrrverandi nemandi í Grunndeild

NÁM Í GRUNNDEILD

Nám til Grunnprófs getur tekið eitt til tvö ár. Tvisvar á vetri er gefinn kostur á prófum og geta nemendur tekið prófið í áföngum, eða lokið því með einu prófi – Grunnprófi.

Til að ljúka fullgildu Grunnprófi þarf bæði að ljúka Grunnprófi í einsöng og Grunnprófi í tónfræði.

Tónfræðiáfangarnir tónfræði G1 og tónfræði G2 leiða að grunnprófi í tónfræði. Yfirleitt taka nemendur í tónfræði G2 grunnpróf í tónfræði í maí.

Grunnpróf jafngildir gamla 3. stigi í söng. Nemendur geta farið í 1. stigs og 2. stigs próf áður en þeir fara í Grunnpróf (3. stig).

  1. stig í söng, áfangi til Grunnprófs: Verkefnalisti 10 verkefni
  2. stig í söng, áfangi til Grunnprófs: Verkefnalisti 10 + 10 verkefni / samtals 20 verkefni
  3. stig í söng, Grunnpróf: Verkefnalisti 10 + 10 + 10 verkefni / samtals 30 verkefni
Fullt nám Á VIKU
  • 2 x 30 mín eða 1 x 60 mín söngur / einkatími
  • 1 x 30 mín píanóundirleikur / einkatími

Hafi nemandi lagt stund á tónlistarnám er möguleiki á að meta það sem verkefni til Grunnnámsins.

Hálft nám með meðleik Á VIKU
  • 1 x 30 mín söngur / einkatími
  • 1 x 20 mín píanóundirleikur / einkatími
Hálft nám án meðleiks Á VIKU
  • 1 x 30 mín söngur / einkatími
HÓPTÍMAR Á VIKU: 
  • Tónfræði 60 mín
  • Samsöngur/Opin Grunndeild 1 x 90 mín með píanóleikara og söngkennara.

Hóptímar eru innifaldir í skólagjaldi.

Nemandi er, með fulltingi kennara síns, ábyrgur fyrir vel undirbúnum, 30 laga verkefnalista til afhendingar.

Sjá kröfur fyrir grunnpróf hér fyrir neðan.

Til grundvallar grunnprófs er vísað í kaflann um námsmat og próf úr Aðalnámskrá tónlistarskóla.

Nemendur í grunndeild koma fram á tónleikum nokkrum sinnum á vetri.

Söngæfingar skulu sungnar án undirleiks – Prófdómarinn velur tóntegundir og sérhljóða til að syngja en nemandinn þarf að geta sagt til um raddsvið sitt – Nemandinn þarf að geta sungið æfingarnar á mismunandi hraða.

Söngæfing nr. 1

Söngæfing nr. 2
Söngæfing nr. 3
VERKEFNALISTI  10+10 VERKEFNI (1. og 2. stig)

Verkefni eru valin með tilliti til gildandi námskrár í Grunnnámi,  íslensk og erlend þjóðlög og sönglög, en einnig frjálst val við hæfi aldurs söngnema,  má þar t.d. benda á söngleikjalög.

 Á verkefnalistanum er merkt við 6 verkefni sem tilbúin eru til flutnings:

  • Við 2 verkefni XX – Val nemanda
  • Við 4 verkefni X – Prófdómari velur 2 af þeim til flutnings

Nemandi syngur 4 lög og ræður röð sönglaga í flutningi. Nemandi syngur söngæfingar – 3 æfingar (fylgja). Þær eru sungnar undirleikslaust, og á mismunandi sérhljóðum að vali prófdómara.

Kröfur:    

Nemendur í Grunndeild stunda nám í tónfræði G1 og svo G2. Tónfræði G2 lýkur með Grunnprófi í tónfræði. 

Verkefnalisti   10 verkefni:

Verkefni eru valin með tilliti til gildandi námskrár í Grunnnámi, aðallega íslensk þjóðlög og sönglög, en einnig frjálst val við hæfi aldurs söngnema,  má þar t.d. benda á söngleikjalög. Á verkefnalistanum er merkt við 6 verkefni sem tilbúin eru til flutnings:

  • Við 2 verkefni XX – Val nemanda
  • Við 4 verkefni X – Prófdómari velur 2 af þeim til flutnings

Nemandi syngur 4 lög og ræður röð sönglaga í flutningi. Nemandi syngur tækniæfingar – 3 æfingar (fylgja). Æfingar eru sungnar undirleikslaust, og á mismunandi sérhljóðum að vali prófdómara.

Söngæfingar skulu sungnar án undirleiks – Prófdómarinn velur tóntegundir og sérhljóða til að syngja en nemandinn þarf að geta sagt til um raddsvið sitt – Nemandinn þarf að geta sungið æfingarnar á mismunandi hraða.

Söngæfing nr. 1
Nr. 1
Söngæfing nr. 2
Nr. 2
Söngæfing nr. 3
Nr. 3
Kröfur:    

Nemendur í Grunndeild stunda nám í tónfræði G1 og svo G2. Tónfræði G2 lýkur með Grunnprófi í tónfræði. 

Verkefnalisti   10 verkefni:

Verkefni eru valin með tilliti til gildandi námskrár í Grunnnámi:

  • Íslensk og erlend þjóðlög og sönglög, en einnig frjálst val við hæfi aldurs söngnema, má þar t.d. benda á söngleikjalög.
  • Lágmark að sungið sé á tveimur tungumálum, þ.e. íslensku og einu erlendu tungumáli
  • Á verkefnalistanum er merkt við 6 verkefni sem tilbúin eru til flutnings:
  • Við 2 verkefni            XX      Val nemanda
  • Við 4 verkefni            X         Prófdómari velur 2 af þeim til flutnings
  • Nemandi syngur 4 lög og ræður röð sönglaga í flutningi.
  • Nemandi syngur tækniæfingar – 3 æfingar (fylgja)

Æfingar eru sungnar undirleikslaust, og á mismunandi sérhljóðum að vali prófdómara.

Söngæfingar skulu sungnar án undirleiks – Prófdómarinn velur tóntegundir og sérhljóða til að syngja en nemandinn þarf að geta sagt til um raddsvið sitt – Nemandinn þarf að geta sungið æfingarnar á mismunandi hraða.

Söngæfing nr. 1
Söngæfing nr. 2
Söngæfing nr. 3
Söngæfing nr. 4
Kröfur: 

Til að ljúka fullgildu Grunnprófi í söng þarf bæði að ljúka Grunnprófi í einsöng og Grunnprófi í tónfræði. Áfanganum tónfræði G2 lýkur með Grunnprófi í  tónfræði.

Hlekkur á Prófanefnd: Prófþættir í einsöng.

Grunnpróf

Fyrir próf skal nemandi undirbúa þrjú söngverk. Auk þess skal hann leggja fram lista með fimm söngverkum og velur prófdómari eitt þeirra til flutnings. Alls eru því undirbúin átta prófverkefni. Skulu þau öll vera í samræmi við kröfur námskrárinnar og á ekki færri en tveimur tungumálum að íslensku meðtalinni.

Miða skal við að heildarpróftími á grunnprófi í einsöng fari ekki fram yfir 30 mínútur. Á prófinu skal nemandi flytja öll verk utanbókar. Gæta skal þess að verkefnaval sé fjölbreytt og að efnisskráin endurspegli mismunandi stíltegundir og tónlist frá ólíkum tímabilum. Tónverk á íslensku, þýsku, ensku, ítölsku, dönsku, norsku eða sænsku skal syngja á frummáli en í öðrum tilvikum eru þýðingar leyfðar.

Prófþættir eru þessir:

  • Fjögur ólík söngverk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
  • Æfingar (15 einingar) í samræmi við kröfur greinanámskrár.

    Til skýringar:

    Á grunnprófi er miðað við að nemendur flytji söngæfingar á eftirfarandi tónsviði:
    Há rödd: c’ – g“ / c – g’
    Lág rödd: as – es“ / As – es’

    Athugið að æfingarnar „Tónmyndun og sérhljóðar“ og „Inntónun og legato“ liggja mun hærra en aðrar skylduæfingar og ekki er gert ráð fyrir að nemendur flytji þær við efri mörk framangreindra raddsviða. Miðað er við að nemendur flytji hverja söngæfingu í nokkrum misháum tóntegundum.

  • Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
    1. Spinni út frá gefnu upphafi, hljómferli eða lagi, með eða án undirleiks.
    2. Syngi frumsamið verk eða eigin útsetningu.
    3. Syngi án undirleiks alþýðulag eða þjóðlag sem lært hefur verið eftir eyra.
    4. Syngi lag í öðrum tónlistarstíl en þeim sem koma fyrir í námskránni, með eða án undirleiks.
    5. Sýni með ótvíræðum hætti fram á eigið frumkvæði, frumlega og skapandi túlkun í flutningi lags að eigin vali, með eða án undirleiks.
  • Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
    Sjá upplýsingar um prófkröfur í óundirbúnum nótnalestri (pdf-skjal) í einsöng.
  • Heildarsvipur (5 einingar).
Til að ljúka Grunnprófi þarf nemandi að hafa lokið:
  • Söngur: Grunnpróf
  • Tónfræði: Grunnpróf
prófgjöld

Prófgjöld skólaárið 2025-2026 eru sem hér segir:

  • Grunnpróf: 12.600 kr.
  • Miðpróf: 18.800 kr.
  • Framhaldspróf: 24.300 kr.
  • Framhaldsprófstónleikar: 40.500 kr.
  • Miðpróf tónfræðagreina: 7.000 kr.

 

Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin:

Mán. – fim. kl. 09:00-15:00

Lokað á föstudögum og um helgar

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING