Námsleiðir
Framhaldsdeild
Markmið söngnámsins er að kenna og þjálfa nemendur í heilbrigðri raddbeitingu, túlkun og framkomu. Námið er einstaklingsmiðað og þar með getur nemandinn lagt til málanna sitt áhugasvið varðandi verkefnaval og smátt og smátt mótast sá árangur sem leiðir að markmiði, hvort sem það verður betri raddbeiting til hvaða starfs sem er, eða í atvinnumennsku í söng, rytmískan söng eða klassískan. Nemendur fá þjálfun í sviðsframkomu, og öðlast færni í að syngja fyrir áheyrendur, lesa nótur og skilja tónfræði.
„Það besta við Söngskólann í Reykjavík er að mínum mati starfsfólkið. Það er alltaf hægt að leita sér aðstoðar og kennararnir eru allir miklir fagmenn með tölu. Ég hef alltaf fundið fyrir miklum stuðningi, skilningi og hlýju viðmóti í þessum skóla.“
Þórhildur Steinunn Kristinsdóttir
Fyrrverandi nemandi í FramhaldsdeildNÁM Í FRAMHALDSDEILD
6. stig – Fyrri áfangi til Framhaldsprófs – Sjá Aðalnámskrá tónlistarskóla.
Forkröfur:
- Miðprófi í söng lokið
- Miðprófi í tónfræði lokið Verkefnalisti: 21 verkefni
Verkefni eru valin með tilliti til gildandi námskráa Söngskólans, námskrá menntamálaráðuneytisins frá 2002. Verkefnin skulu vera frá mismunandi stíl-tímabilum og innihalda sönglög, söngva úr leikritum og söngleikjum, aríur úr kantötum, óratoríum, óperettum og óperum. Sungið sé að lágmarki á fjórum tungumálum, þ.e. íslensku og þremur erlendum tungumálum.
Á verkefnalistanum eru 12 verkefni:
- Merkt XX: 4 verkefni sem nemandi velur
- Merkt X: 6 viðfangsefni af verkefnalista framhaldsnáms – Prófdómari velur 1 þeirra
- VAL : 1 viðfangsefni að vali nemanda
- ÞJÓÐLAG: 1 undirleikslaust (1-3 mín)
Nemandi ræður röð flutnings.
Til að ljúka 6. stigs prófi:
- Söngur 6. stig
- Tónheyrn F1
- Hljómfræði F1
- Tónlistarsaga, eitt ár
7. stig – Seinni áfangi til Framhaldsprófs –
Forkröfur:
- 6. stigi í söng lokið
- Tónheyrn F1 lokið
- Hljómfræði T1 lokið eða í undirbúningi (lokið í tengslum við söngprófið)
- Tveimur áföngum í tónlistarsögu lokið (3. og 4. áfangi sé í undirbúningi)
Verkefnalisti: 21 verkefni
Verkefni eru valin með tilliti til námskrá menntamálaráðuneytisins frá 2002 . Verkefnin skulu vera frá mismunandi stíl-tímabilum og innihalda sönglög, söngva úr leikritum og söngleikjum, aríur úr kantötum, óratoríum, óperettum og óperum. Sungið sé að lágmarki á fjórum tungumálum, þ.e. íslensku og þremur erlendum tungumálum.
Til að ljúka Framhaldsprófi:
- Söngur Framhaldspróf
- Tónheyrn F2
- Hljómfræði F2
- Tónlistarsaga fjórir áfangar – lokapróf
- Hluti af Framhaldsprófinu eru tónleikar
Framhaldspróf
Fyrir próf skal nemandi undirbúa þrjú söngverk. Auk þess skal hann leggja fram lista með sjö söngverkum og velur prófdómari tvö þeirra til flutnings. Alls eru því undirbúin tíu prófverkefni. Skulu þau öll vera í samræmi við kröfur námskrárinnar og á eigi færri en fjórum tungumálum að íslensku meðtalinni.
Miða skal við að heildarpróftími á framhaldsprófi í einsöng fari ekki fram yfir 60 mínútur. Gæta skal þess að verkefnaval sé fjölbreytt og að efnisskráin endurspegli mismunandi stíltegundir og tónlist frá ólíkum tímabilum. Á prófinu skal nemandi flytja öll verk utanbókar nema um sé að ræða aríu úr óratoríu eða kantötu og nútímatónlist. Tónverk á íslensku, þýsku, ensku, ítölsku, norðurlandamálum, frönsku og spænsku skal syngja á frummáli, annars eru þýðingar leyfðar.
Prófþættir eru þessir:
- Fimm ólík söngverk (15 einingar hvert) í samræmi við kröfur greinanámskrár.
- Val (10 einingar). Nemandi velji eitt eftirtalinna viðfangsefna:
- Syngi verk að eigin vali af sambærilegri þyngd og önnur framhaldsprófsverkefni.
- Syngi samsöngs- eða samleiksverk þar sem hann gegnir veigamiklu hlutverki.
- Óundirbúinn nótnalestur (10 einingar).
- Heildarsvipur (5 einingar).
Tónleikar
Að loknu framhaldsprófi í einsöng skal nemandi flytja 30-60 mínútna langa efnisskrá á tónleikum innan eða utan skólans. Fyrir frammistöðu á tónleikunum er gefin umsögn en ekki einkunn. Ekki er nauðsynlegt að halda tónleikana á sama skólaári og söngprófið fer fram. Séu prófið og tónleikarnir haldnir á sama skólaári er heimilt að nota alla efnisskrá prófsins á tónleikunum. Fari tónleikar fram síðar skal að minnsta kosti helmingur efnisskrárinnar endurnýjaður. Gæta þarf þess að efnisskrá sé fjölbreytt og vel saman sett.
prófgjöld
Prófgjöld skólaárið 2025-2026 eru sem hér segir:
- Grunnpróf: 12.600 kr.
- Miðpróf: 18.800 kr.
- Framhaldspróf: 24.300 kr.
- Framhaldsprófstónleikar: 40.500 kr.
- Miðpróf tónfræðagreina: 7.000 kr.