Námsleiðir

Námskeið

Markmið Söngskólans í Reykjavík er að kenna nemendum heilbrigða og framúrskarandi raddbeitingu, túlkun og framkomu. En einnig er boðið upp á fjölbreytt styttri námskeið eins 8 vikna söngnámskeið fyrir áhugafólk. Næsta námskeið hefst 24. ágúst 2026. Þar að auki er hægt að kaupa 5 eða 10 tíma söngkort til að fara í einkatíma í söng.

SEE THE ENGLISH VERSION BELOW

Ekkert inntökupróf

8 VIKNA SÖNGNÁMSKEIÐ

Námskeiðin eru ætluð söngfólki á á aldrinum 12 ára til 99 ára; skemmtilegt, fræðandi og gefandi tómstundanám. Mjög góð þjálfun fyrir söngvara og frábær undirbúningur fyrir þá sem hyggja á frekara söngnám. 

  • Söngtækni
  • Túlkun
  • Framkoma
  • Tónfræði

  • Námskeið I hefst 24. ágúst 2026
  • Námskeið II hefst 19. október 2026
  • Námskeið III hefst 11. janúar 2027
  • Námskeið IV hefst 8. mars 2027

Innifalið:

  • 8 x 30 mínútna einka söngtímar. Þeir fara fram á tíma sem kennarinn og nemandinn ákveða sín á milli. Kennarar: Söngkennarar skólans.
  • 7 x 45 mínútna tónfræðitímar á mánudögum kl. 17:30-18:15. Kennari: Eygló Höskuldsdóttir Viborg.
  • 3 x 60 mínútna samsöngstímar á fimmtudögum kl. 18:00-19:00. Kennarar: Egill Árni Pálsson söngkennari og Sævar Helgi Jóhannsson píanóleikari.

Allir tímar fara fram á Grensásvegi 3, 3. hæð.

Gjaldið fyrir námskeiðið er 99.000 kr.

Hægt er að skipta gjaldinu niður á tvo gjalddaga í Abler appinu.

Námsefni

Athugið að nemendur gætu þurft að festa kaup á námsefni, s.s. nótum og kennslubók í tónfræði. Kostnaður við námsefni er ekki innifalinn í námskeiðsgjaldinu.

Næsta námskeið hefst 24. ágúst 2026

 

Hóptímar eru eftirfarandi:

Tónfræði, sjö mánudaga, frá 24. ágúst 2026 kl. 17:30-18:15. Kennari: Eygló Höskuldsdóttir Viborg.

Dagsetningar: 24. ágúst., 31. ágúst, 7. september, 14. september, 21. september, 28. september, 5. október.

Samsöngur, þrisvar sinnum, kl. 18:00-19:00 í sal skólans, fimmtudagana 10. september, 24. september og 15. október 2026.

Kennarar í samsöng: Egill Árni Pálsson söngkennari og Sævar Helgi Jóhannsson píanóleikari.

Styrkir

Nemendur 18 ára og yngri, með lögheimili í Reykjavík, geta nýtt 75.000 kr. Frístundastyrk Reykjavíkurborgar til niðurgreiðslu á námskeiðinu. Athugið að önnur sveitarfélög eru með aðrar reglur fyrir sína frístundastyrki. 

Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja námskeið eða nám? Hafðu samband við þitt stéttarfélag og kannaðu málið.Hér fyrir neðan eru tenglar á heimasíður þar sem nálgast má upplýsingar um styrki en athugaðu að listinn er ekki tæmandi.

Hafðu samband við þitt stéttarfélag og kannaðu hvort þú átt rétt á styrk sem þú getur nýtt þér fyrir söngnámskeið.

Afl stéttarfélag

BHM

BSRB (Stéttarfélög í almannaþjónustu)

Efling

FFÍ (Flugfreyjufélag Íslands)

FÍA (Félag íslenskra atvinnuflugmanna)

FÍH (Félag íslenskra hljómlistamanna)

Kennarasamband Íslands  

Kjölur (Stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu)

LL (Landssamband lögreglumanna)

Landsmennt (Fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni)

Leiðsögn – stéttarfélag leiðsögumanna

MATVÍS

Rafiðnaðarsamband Íslands

SEF (Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara)

Sameyki (SFR)

Samband stjórnendafélaga

SSF – Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja

Starfsafl

Starfsgreinasamband Íslands

Starfsmenntasjóður SVS (VR, LÍV, FVSA)

Verkfræðingafélag Íslands

VR 

VIRK

AÐRIR

Vinnumálastofnun veitir einnig styrki

Iðan fræðslusetur – fyrirtækja styrkir

 

ENGLISH

 
8 WEEK SINGING COURSE

The courses are intended for singers of all ages. They are fun, educational and rewarding leisure activities. The courses provide good training for singers and they are excellent preparation for those who are considering further singing studies. Please note that the theory classes are taught in Icelandic. If you would like to opt for only voice classes, without theory, you can sign up for 5 or 10 private voice lesson, see below for more information.

• Vocal technique

• Interpretation

• Performance

• Music theory (in Icelandic)

Included:

• 8 x 30 minute private singing lessons. They take place at a time agreed between the teacher and the student.

• 7 x 45 minute music theory group lessons in Icelandic on Mondays at 17:30-18:15.

• 3 x 60-minute performance group classes with a pianist and a voice teacher in the school’s hall on three Thursdays at 18:00-19:00.

All classes take place at Grensásvegur 3, Reykjavík.

Fee

The fee for the course is ISK 99,000.

Study material

Please note that students may have to purchase study materials, e.g. sheet music and a music theory textbook. The cost of study materials is not included in the course fee

SÖNGKORT

Einkatímar í söng

Söngskólinn í Reykjavík býður upp á 10 tíma og 5 tíma söngkort. Með söngkortinu geturðu farið í einkatíma í söng hjá kennara við Söngskólann í Reykjavík. Tónfræði og hóptímar eru ekki innifalin í söngkortum. Kennarinn og nemandinn finna saman þann tíma sem hentar báðum. Tímarnir fara fram á Grensásvegi 3. Skólinn býður einnig upp á söngtíma í gegnum netið.

Verð:

  • 10 tímar x 60 mínútur = 190.000 kr
  • 10 tímar x 30 mínútur = 105.000 kr
  • 5 tímar x 60 mínútur = 105.000 kr
  • 5 tímar x 30 mínútur = 55.000

Lágmarks kennslumagn: 5 tímar

Greiðsla fyrir tímana fer fram í gegnum Abler, en fyrst er nauðsynlegt að skrá sig í gegnum heimasíðu skólans: https://songskolinn.is/

Afbókunarstefna: Athugið að kennara ber ekki að bæta upp tíma sem nemandi aflýsir sama dag og tíminn átti að fara fram. Með lengri fyrirvara geta nemandi og kennari reynt að finna nýjan tíma ef nemandinn kemst ekki í þann tíma sem ákveðinn var fyrirfram.

Ekki er hægt að nýta frístundastyrki Reykjavíkurborgar fyrir söngkort, en hægt er að nýta þá í almennu námi við skólann.

Vouchers

Private voice lessons

The Reykjavík Academy of Singing (Söngskólinn í Reykjavík) offers vouchers for either 5 or 10 private voice lessons with a teacher at the Academy. Music theory and group lessons are not included in the vouchers. The voice lessons take place at Grensásvegur 3, Reykjavík, at a time agreed upon by the teacher and student. The school also offers singing lessons online.

Prices:

  • 10 x 60 minutes = 190.000 ISK
  • 10 x 30 minutes = 105.000 ISK
  • 5 x 60 minutes = 105.000 ISK
  • 5 x 30 minutes = 55.000 ISK

The vouchers have a 5-class minimum.

Payment for the vouchers goes through Abler, but students first have to register through the school’s webpage: https://songskolinn.is/

Cancellations: Please note that the voice teacher is not obliged to make up a voice class that is cancelled by the student on the day of the lesson. With more notice, the student and the teacher can try to find a new time if the student cannot make it to the time that was decided in advance.

The Reykjavík Academy of Singing is a renowned music school with more than 50 years of experience in offering voice training. Many of Iceland’s most successful singers have studied at the school.

Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin:

Mán. – fim. kl. 09:00-15:00

Lokað á föstudögum og um helgar

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING