Námsleiðir
Söngleikjadeild
Söngskólinn í Reykjavík lauk sínu 50. starfsári árið 2023 og af því tilefni var stofnuð söngleikjadeild við skólann af þeim Garðari Thor Cortes og Valgerði Guðnadóttur. Eftirspurn eftir slíku námi hefur aukist undanfarin ár og skólinn sinnir nú því kalli.
Í hópi nemenda sem lokið hafa prófum frá Söngskólanum í Reykjavík eru fulltrúar sem hafa átt glæsilegan feril og verið eftirsóttir hérlendis og erlendis í flutningi á ýmsum leiksviðum söngleikjanna.
Kennarar deildarinnar eru landsþekktir listamenn og þar ber helst að nefna Valgerði Guðnadóttur, Þórunni Lárusdóttur og Kjartan Valdemarsson.
Námslýsing
Áhersla Söngleikjadeildar er sú að nemendur öðlist góða reynslu í að tjá sig í söng og leik á sviði og hljóti jafnframt undirbúning fyrir inntökupróf til dæmis í leiklistar- og/eða söngleikjanám á háskólastigi.
Nemendur læra raddbeitingu, fá leiðsögn og þjálfun í textameðferð og leikrænni tjáningu og vinna með píanóleikara. Að auki læra nemendur tónfræði og tónheyrn og hafa val um að læra tónlistarsögu.
Hægt er að taka Grunn- og Miðpróf við Söngleikjadeild og eftir það er annað hvort hægt að ljúka svokölluðu Diplómaprófi úr Söngleikjadeild eða ljúka hefðbundnu framhaldsnámi í klassískum söng.
Lögð er áhersla á frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð og hvatt er til samvinnu til dæmis í hópverkefnum og sviðsvinnu. Góð mæting er gríðarlega mikilvæg.
Námið skiptist þannig að nemendur fá einkatíma í söng tvisvar í viku, hálftíma í senn með söngkennara og einu sinni í viku í hálftíma með píanóleikara. Hóptímar eru tvisvar í viku tveir tímar í senn. Mikilvægt er að allir nemendur geti mætt í báða þessa tíma þar sem unnið er með öllum hópnum í samsöng, leiklist og hreyfingum. Áhersla er lögð á að nemendur komi undirbúnir í hóptímana og geti sungið blaðlaust.
Nemendur undirbúa Grunn- / Miðpróf eða Diplóma með sínum söngkennara samhliða öðrum verkefnum og metur kennari hvenær nemandi er tilbúinn til að taka slík próf. Í Grunn- og Miðnámi er miðað við aðalnámskrá í klassísku söngnámi en verkefnaval er hins vegar að stórum hluta söngleikjatónlist. Verkefnaval diplómanáms Söngleikjadeildar inniheldur einungis söngleikjatónlist frá hinum ýmsu stílum söngleikjatónlistar. Kjarnafög Diplómanáms fylgja aðalnámskrá.
Haustsýning
Á haustönn er tónleikasýning, sviðsett að hluta, sem allir nemendur Söngleikjadeildar taka þátt í.
Jólatónleikar
Í desember eru jólatónleikar Söngleikjadeildar þar sem verkefni eru fjölbreytt og tengd jólum.
Vorsýning
Eftir áramótin hefst vinna við vorsýningu deildarinnar. Að auki við hefðbundnum hóptímum er gert ráð fyrir viðbótaræfingum þegar nær dregur sýningu.
Prófað er í hlutverk úr öllum hópnum en um leið lögð áhersla á að allir nemendur deildarinnar séu þátttakendur. Verkefnval miðast við hópinn hverju sinni og verður það kynnt í upphafi vorannar.
NÁMIÐ
EINKATÍMAR Á VIKU
• Söngtími 2×30 mín eða 1×60 mín
• Söngur með meðleikara 1×30 mín í Grunn- og Miðdeild, 40 mín í Framhaldsdeild
KJARNAGREINAR Á VIKU. HÓPTÍMAR:
• Tónfræði 60 mín í Grunn- og Miðdeild
• Tónheyrn 60 mín í Framhaldsdeild
• Tónlistarsaga í Framhaldsdeild 60 mín
• Hljómfræði í Framhaldsdeild 60 mín
• Hóptími Söngleikjadeildar 2×120 mín
• Leiklist og tjáning (hluti af hóptíma)