Námsleiðir

Ungdeild

Ungdeild Söngskólans í Reykjavík er fyrir 9 -15 ára nemendur.

Fornám er fyrir 6-8 ára nemendur.

Námið er frábær grunnur fyrir alla unga og áhugasama söngvara hvort sem þeir hafa einhvern grunn í tónlist eða ekki. Markmið söngnáms við Söngskólann í Reykjavík er að nemendur læri heilbrigða raddbeitingu, túlkun og framkomu og auk þess að efla og styrkja sönggleði. 

Námið er einstaklingsmiðað þar sem nemandinn fær einkatíma í söngþjálfun auk þess að taka þátt í hóptíma með öðrum nemendum deildarinnar. Nemendur eru þjálfaðir í sviðsframkomu til að öðlast færni í að syngja fyrir áheyrendur, lesa nótur og skilja grunn tónfræði.

Nám í ungdeild

„Skólinn er eitt af því allra skemmtilegasta sem ég hef stundað“

Ellert Blær
Fyrrverandi nemandi í Ungdeild

Kennarar Ungdeildar

Harpa Harðardóttir

Harpa lauk einsöngs- og söngkennaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 1994 og fór í tveggja ára framhaldsnám hjá prófessor Andrei Orlowits í Kaupmannahöfn. Hún hefur tekið þátt í fjölda námskeiða og sótt söngtíma hjá kennurum eins og Helene Karusso, Evgeniu Ratti, Ellen Field og Kiri Te Kanawa. Hún hefur einnig tekið þátt í uppfærslum með kór Íslensku Óperunnar og komið fram sem einsöngvari við ýmis tækifæri, haldið einsöngstónleika sem og tónleika með öðrum listamönnum og tekið þátt í verkefnum eins og Tónlist fyrir alla.

Sibylle Köll

Sibylle Köll stundaði ballett- og tónlistarnám frá sex ára aldri í heimalandi sínu, Austurríki. Hún stundaði dansnám við Hogeschool voor de Kunsten Arnhem í Hollandi. Hún stundaði söngnám við Royal Conservatory The Hague í Hollandi og Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan bæði einsöngvaraprófi og söngkennaraprófi. Sibylle hefur starfað sem kennari í söngtækni og sviðslistum við Söngskólann í Reykjavík. Hún hefur víða komið fram sem einsöngvari, meðal annars í Íslensku óperunni, með Óperukórnum og við ýmsar kirkjulegar athafnir og tónleika. Sibylle hefur einnig unnið með Íslenska dansflokknum og kennt nútímajazz og ballet. Þá hefur hún unnið að sviðsetningum með Nemendaóperu Söngskólans, bæði sem danshöfundur og leikstjóri.

Ungdeild er skipt í þrennt
  • Fornám (6-8 ára)
  • Ungdeild yngri (9-12 ára)
  • Ungdeild eldri (13-15 ára)

Lögð er áhersla á rétta og áherslulausa raddbeitingu. Ungdeild yngri og eldri læra undirstöðuatriði í tónfræði, heyrnarþjálfun og nótnalestur. Nemendur koma fram á tónleikum, bæði innan deildarinnar og á heildartónleikum skólans.

Kennslutímar í viku

Söngur / Raddbeiting / Túlkun 20-30 mínútur á viku í einkatímum
Samsöngur / Hreyfingar 60 mínútur á viku í hóptímum
Tónfræði / Tónheyrn / Nótnalestur 45 mínútur á viku í hóptímum (Ungdeild yngri og eldri)

Auk þess (utan stundaskrár):

Á hverjum vetri fer fram mat á námsárangri hvers nemanda, í formi ársumsagnar eða stigsprófs.
Nemendur deildarinnar syngja á tvennum tónleikum á vetri og ýmsum uppákomum tengdum skólanum.

Aðrar kröfur til prófanna eru:

Grunnpróf í tónfræði til að ljúka grunnprófi (3. stigi) í söng.

Samsöngur: ástundun og þátttaka í verkefnum
Sungið á nemendatónleikum 2svar sinnum á vetri

Skólagjöld
Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin:

Mán. – fim. kl. 09:00-15:00

Lokað á föstudögum og um helgar

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING