Ágætu nemendur Söngskólans í Reykjavík
Skv. fyrirmælum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga verður Söngskólinn að fella niður alla hóptíma s.s. hópæfingar, tónfundi og tónfræðitíma. Því verðum við að fella niður eftirfarandi tíma:
- Tónfræði
- Tónfræði námskeiða
- Tónfræði UNG 1
- Tónfræði UNG 2
- Hljómfræði
- Tónheyrn
- Nótnalestur
- Nótnalestur QS
- Tónlistarsaga
- Unglingadeild
- Opin Grunndeild
- Opin Miðdeild
- Ljóða- og aríudeild.
Ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi verkefnin sem þið eruð að vinna, s.s. í tónfræði, tónlistarsögu og hljómfræði, hikið ekki við að hafa samband við kennarana ykkar.
Allir einkatímar; söngur og píanó, halda áfram samkvæmt skipulagi.