Í dag, 18. október, syngja nemendur í Framhaldsdeild Söngskólans í Reykjavík í messum víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal í Seltjarnarneskirkju. Þannig gefa nemendur af sér til samfélagsins og fá líka þjálfun í að koma fram. Það er Harpa Harðardóttir, kennari við Söngskólann í Reykjavík, sem skipuleggur árlegan messusöng nemenda í Framhaldsdeild.