22. september, 2026

Marta Kristín heimsótti Óperudeild

Marta Kristín Friðriksdóttir sópransöngkona kom í heimsókn í Söngskólann í Reykjavík í síðustu viku. Hún leiðbeindi nemendum í Óperudeild skólans og deildi með þeim reynslu sinni og þekkingu sem hún hefur viðað að sér við nám og störf en Marta hefur aldeilis gert garðinn frægan erlendis undanfarið.

Marta Kristín Friðriksdóttir lauk 8. stigs söngprófi með hæstu einkunn frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2017 og hélt héðan í Tónlistarháskólann í Vín. Þar lauk hún námi árið 2024 og er nú fastráðin við Staatstheater Kassel í Þýskalandi.

Leikárið 2025/26 fór hún meðal annars með hlutverk Súsönnu (Le nozze di Figaro), Fiordiligi (Così fan tutte), Gretel (Hänsel und Gretel), Rosalinde (Die Fledermaus) og sópranhlutverkið í Deutsche Sinfonie eftir Hanns Eisler.

Hún kom fyrst fram á sviði Staatstheater Kassel á leikárinu 2024/25 sem Fiordiligi og Micaëla (Carmen), og söng Donnu Önnu (Don Giovanni) í uppfærslu Vorarlberger Landestheater í Bregenz sama ár.

Árið 2023 hlaut hún aðalverðlaun í óperukeppni Kammeroper Schloss Rheinsberg og söng þar hlutverk Baronessu Eugeníu (La Molinara) á sumartónlistarhátíðinni. Hún sneri aftur til Rheinsberg sumarið 2024 og fór með aðalhlutverk í Iphigénie en Aulide eftir Gluck, þar sem hún söng við hlið Vivicu Genaux og Dietrichs Henschel. Önnur verkefni sama ár fólu meðal annars í sér hlutverk Ölmuí frumflutningi óperunnar Die Leute auf Borg eftir H. Neumann í Veliko Tarnovo í Búlgaríu.

Marta Kristín er einnig vinningshafi alþjóðlegra klassískra söngkeppna. Árið 2023 hlaut hún önnur verðlaun í Harvets Röst keppninni á Álandseyjum og var aðalverðlaunahafi í Kammeroper Schloss Rheinsberg keppninni. Árið 2022 hlaut hún Young singer verðlaunin í DEBUT keppninni og söng í úrslitum hinnar virtu Belvedere keppni í Jurmala í Lettlandi. Árið 2021 hlaut hún fyrstu verðlaun í keppninni Ungir einleikarar á vegum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og árið 2019 söng hún í lokaumferð Neue Stimmen keppninnar. 

Á myndinni sést Marta með nokkrum nemendum skólans.

Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin:

Mán. – fim. kl. 09:00-15:00

Lokað á föstudögum og um helgar

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING