Minningarsjóður Guðfreðs Hjörvars Jóhannessonar, í varðveislu Söngskólans í Reykjavík, veitti þriðjudaginn 15. september 2026 sjö efnilegum nemendum skólans námsstyrki. Styrkirnir nýtast til að greiða niður í heild eða að hluta til skólagjöld nemendanna sjö við Söngskólann í Reykjavík skólaárið 2026-2027. Alls var 2,5 milljónum úthlutað úr sjóðnum.
Á þeim sjö árum sem liðin eru frá stofnun sjóðsins hafa 37 nemendur hlotið styrki úr honum.
Styrkþegar að þessu sinni eru:
Alma Hlín Þórarinsdóttir
Aþena Helgadóttir
Hera Sjöfn Atladóttir
Jón Valur Kristjánsson
Sigurður Matthías Sigurðarson
Steinunn Harðardóttir
Sunna Rós Guðbjörnsdóttir
Söngskólinn í Reykjavík hefur í vörslu sinni áðurnefndan sjóð sem er til minningar um Guðfreð Hjörvar Jóhannesson, en hann var starfsmaður og velunnari Söngskólans í Reykjavík um árabil. Sjóðurinn var stofnaður í febrúar 2018 og er stofnandi sjóðsins dánarbú Guðfreðs.
Markmið sjóðsins er að styrkja unga, efnilega nemendur við Söngskólann í Reykjavík og skulu þeir valdir af stjórn sjóðsins, sem nú skipa þau Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Viðar Gunnarsson og Þorvaldur Gylfason.
Guðfreður sagði eftirfarandi í viðtali við Morgunblaðið árið 2017:. „Þar sem ég á engan lögerfingja hef ég í erfðaskrá minni unnið að því að andvirði íbúðar minnar og öðrum fjármunum verði eftir minn dag varið í minningarsjóð fyrir efnilega söngnemendur. Eins og kunnugt er getur verið erfitt fyrir unga listnema að fóta sig fjárhagslega á meðan þeir ljúka námi og ég vil gera mitt til að veita þeim aðstoð, enda útskrifast sægur af hæfileikafólki úr Söngskólanum í Reykjavík.“