Minningarsjóður Jóns Stefánssonar auglýsir eftir tilnefningum um styrkþega.
Skriflegar tilnefningar skulu sendar á netfangið minningarsjodurjs@gmail.com eigi síðar en 10. september 2026. Í tilnefningu skulu koma fram:
i. Upplýsingar um umsækjanda sem er tilnefndur; nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Helstu atriði úr náms- og starfsferilsskrá.
ii. Upplýsingar um þann sem leggur fram tilnefninguna; nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Lýsing á tengslum viðkomandi við þann sem er tilnefndur.
ii. Stutt og hnitmiðuð lýsing á hvers vegna umsækjandi er tilnefndur.
iii. Lýsing á því hvernig tilnefningin fellur að markmiðum Minningarsjóðs Jóns Stefánssonar.
Almennt er miðað við að tilnefndir einstaklingar hafi lokið framhaldsnámi í tónlist og séu að hefja eða komnir í tónlistarnám á háskólastigi. Stjórn sjóðsins mun ákveða upphæð veittra styrkja.
Úthlutun verður 16. september 2026 á Heiðurstónleikum Jóns Stefánssonar í Lanholtskirkju. Hann hefði orðið 80 ára í júlí 2026 og því ætla kórar kirkjunnar að syngja á tónleikum honum til heiðurs á vígsludegi Langholtskirkju.
Aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna inn á www.minningarsjodurjs.com