SÖNGSKÓLINN Í REYKJAVÍK LÆKKAR SKÓLAGJÖLDIN!
Af hverju? Er ekki verðbólga og allt að hækka? Jú, en við viljum gera söngnám aðgengilegt sem flestum. Hvernig? Með því að spara í rekstrarkostnaði. Söngskólinn í Reykjavík er að flytja úr húsnæðinu við Laufásveg 49-51 og gefst það frábæra og hagstæða tækifæri að leigja húsnæði af Nýja tónlistarskólanum við Grensásveg 3, þar sem skólarnir tveir munu starfa í sambúð næsta vetur.
Það er stefna Söngskólans í Reykjavík að söngnám sé fyrir alla, ekki bara hina efnameiri. 18 ára og yngri: Munið að nýta frístundastyrkinn! Ný verðskrá hefur birst á vefsíðu skólans: https://songskolinn.is/skolinn/skolagjold/
Við vonum að Reykjavíkurborg komi til móts við Söngskólann í Reykjavík með því að leyfa skólanum að innrita fleiri nemendur.
Athugið að lækkunin er einungis fyrir nemendur í föstu námi (Ungdeild, Grunndeild, Miðdeild, Framhaldsdeild og Söngleikjadeild). Hámarksaldur fyrir nemendur í grunnnámi er 25 ára, samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar.
En ef ég er eldri en 25 ára? Þá geturðu farið á 8 vikna söngnámskeið eða keypt þér söngkort, en þá þarft þú að greiða kennslukostnaðinn að fullu. Sjá vefsíðu skólans.