Hans Júlíus er skrifstofustjóri skólans. Hann er með BA próf í heimspeki og M.Sc. próf í viðskiptafræði, og hefur komið víða við í atvinnulífinu, meðal annars sem markaðsstjóri hjá Endurmenntun HÍ og rekstrarstjóri hjá HHÍ.
Hans Júlíus er einnig mikill söngmaður og hefur frá unga aldri sungið rokk og popp jafnt sem klassík, í hljómsveitum og nokkrum af bestu kórum landsins, meðal annars Fóstbræðrum, Kór Langholtskirkju og Kór Íslensku óperunnar. Undanfarin ár hefur hann stundað nám við Söngskólann samhliða starfi sínu þar.