Í dag sungu nemendur á framhaldsstigi í Söngskólanum í Reykjavík í messum á höfuðborgarsvæðinu. Á myndinni sést Jakob Fjólar Gunnsteinsson syngja í Langholtskirkju, en organisti var Magnús Ragnarsson. Messusöngurinn er gefandi og þroskandi reynsla fyrir söngnemendur, tækifæri til að koma fram opinberlega og leið til þess að gefa af sér til nærsamfélagsins. Það er Harpa Harðardóttir söngkennari við skólann sem á veg og vanda af skipulagningu messusöngsins. Söngskólinn í Reykjavík þakkar eftirfarandi kirkjum og organistum þeirra fyrir gjöfult samstarf:
Langholtskirkja
Kópavogskirkja
Guðríðarkirkja
Fella- og Hólakirkja
Hjalla- og Digraneskirkja
Áskirkja
Hallgrímskirkja
Seltjarnarneskirkja
Vídalínskirkja