Inntökupróf fyrir nám við Söngskólann í Reykjavík fyrir skólaárið 2026-2027 fara fram föstudaginn 22. maí 2026 í sal skólans.
Nemendur senda inn umsókn í gegnum heimasíðu skólans: https://songskolinn.is/umsoknir/
Próftaki syngur eitt lag, að eigin vali með píanóleikara eða undirleik á upptöku/disk/síma.
• Sungið með píanóleikara: Söngskólinn úthlutar píanóleikara, sem æfir lagið með viðkomandi fyrir prófið. Nótur þurfa að liggja fyrir – hægt að leita til skrifstofunnar ef nótur vantar.
• Sungið án píanóleikara: Upptaka af undirleik þarf að vera í tölvu eða síma. Hægt að tengjast hátalara gegnum Bluetooth.
Eftir að lagið er sungið eru gerðar nokkrar raddæfingar, til að finna út hvernig röddin liggur og svo er smá tónheyrnarprufa þar sem próftaki hlustar á nótu og syngur hana svo.
Inntökuprófin eru fyrir almennt nám: Ungdeild, Grunndeild, Miðdeild, Framhaldsdeild og Söngleikjadeild.
Ef þú kemst ekki í inntökuprófið geturðu haft samband við skólastjóra í netfangið gudrun@songskolinn.is til að finna aðrar leiðir.
Þau sem eru áhugasöm um að fara á 8 vikna námskeið eða kaupa sér 5 eða 10 tíma söngkort þurfa ekki að þreyta inntökupróf.


