Við óskum fyrrum nemendum Söngskólans í Reykjavík til hamingju með glæsilegan árangur í Vox Domini söngkeppninni í Salnum í gær. Halldóra Ósk Helgadóttir hlaut verðlaunin Rödd ársins, Áhorfendaverðlaunin og 1. verðlaun í Opnum flokki. Guðrún Margrét Halldórsdóttir hlaut verðlaun fyrir Besta flutning á verki Jóns Ásgeirssonar, sem var tónskáld keppninnar í ár. Tveir fyrrum nemendur úr Söngskólanum komust einnig á verðlaunapall, þær Guðný Guðmundsdóttir sem hafnaði í 3. sæti í Háskólaflokki og Vera Hjördís Matsdóttir sem lenti í 3. sæti í Opnum flokki. Innilegar hamingjuóskir allar saman! ![]()
![]()
![]()
Píanóleikararnir sem léku með söngvurunum í keppninni voru þau Hrönn Þráinsdóttir og Einar Bjartur Egilsson, sem bæði eru meðleikarar við Söngskólann í Reykjavík.
STAÐUR & STUND
17. mars, 2026
Halldóra Ósk Rödd ársins í Vox Domini keppninni
17. mars, 2026
Halldóra Ósk Rödd ársins í Vox Domini keppninni
Við óskum fyrrum nemendum Söngskólans í Reykjavík til hamingju með glæsilegan árangur í Vox Domini söngkeppninni í Salnum í gær. Halldóra Ósk Helgadóttir hlaut verðlaunin Rödd ársins, Áhorfendaverðlaunin og 1. verðlaun í Opnum flokki. Guðrún Margrét Halldórsdóttir hlaut verðlaun fyrir Besta flutning á verki Jóns Ásgeirssonar, sem var tónskáld keppninnar í ár. Tveir fyrrum nemendur úr Söngskólanum komust einnig á verðlaunapall, þær Guðný Guðmundsdóttir sem hafnaði í 3. sæti í Háskólaflokki og Vera Hjördís Matsdóttir sem lenti í 3. sæti í Opnum flokki. Innilegar hamingjuóskir allar saman! 


Píanóleikararnir sem léku með söngvurunum í keppninni voru þau Hrönn Þráinsdóttir og Einar Bjartur Egilsson, sem bæði eru meðleikarar við Söngskólann í Reykjavík.