Kjartan Valdemarsson nam píanóleik við Tónlistarskóla Mosfellsbæjar áður en hann hélt til Bandaríkjanna, en hann stundaði nám við Berklee College of Music 1985-1989. Auk þess að leika jazztónlist með öllum sem nöfnum tjáir að nefna í íslensku jazzlífi hefur Kjartan spilað mikið af popptónlist, meðal annars með Todmobile og Mannakorn.
Hann hefur starfað í leikhúsum og unnið mikið í hljóðverum, bæði sem hljómborðsleikari og upptökustjóri. Kjartan hefur gert mikið af útsetningum, meðal annars fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og Stórsveit Reykjavíkur. Þá lék Kjartan um tíma með einni af fremstu stórsveitum Svíþjóðar; Norbotten Big Band.
Kjartan er meðleikari og kennari við LHÍ og MÍT. Kjartan hefur fengið tónlistarverðlaunin fyrir tónverk ársins og sem flytjandi ársins í djassflokki og verið tilnefndur til tónlistaverðlauna Norðurlandaráðs.