STAÐUR & STUND

4. maí, 2018

Allir geta dansað: 900-9002

Það þarf ekki að kynna Bergþór Pálsson fyrir neinum, hann er löngu búinn að syngja sig inní hjörtu landsmanna. Hann er stórkostlegur söngvari og frábær sviðslistamaður. Nú er hann búinn að heilla þjóðina – eina ferðina enn – en að þessu sinni með dansi í Allir geta dansað. Dansfélagi Bergþórs er engin önnur en Hanna Rún Bazev Óladóttir. Þetta er búið að vera hörð keppni, þar sem metnaðarfullir þátttakendur spreyta sig á nýjum dansi í hverri viku. Sunnudaginn 6. maí fer síðasti þátturinn í loftið og auðvitað er okkar maður einn af keppendum.

 

Bergþór Pálsson fer heilshugar í öll þau verkefni sem mæta honum; hvort sem það er hlutverk í Íslensku óperunni eða í leikhúsum landsins, að kenna þjóðinni borðsiði og aðra mannasiði, eða að leiðbeina söngnemendum við Söngskólann í Reykjavík. Hann hefur kennt mörgu af okkar flottasta söngfólki, m.a. Ara Ólafssyni sem er að keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision um þessar mundir.

 

Við óskum Bergþóri og Hönnu Rún góðs gengis á sunnudaginn og hlökkum mikið til að sjá þau stíga lokadansinn. Þetta keppnistímabil er búið að vera líflegt og skemmtilegt fyrir okkur öll  hér í Söngskólanum og við vonum að Bergþór hætti ekki að taka danssporin á kaffistofunni, þótt keppninni ljúki.

Kosninganúmerið þeirra er: 900-9002 

 

 

4. maí, 2018

Allir geta dansað: 900-9002

Það þarf ekki að kynna Bergþór Pálsson fyrir neinum, hann er löngu búinn að syngja sig inní hjörtu landsmanna. Hann er stórkostlegur söngvari og frábær sviðslistamaður. Nú er hann búinn að heilla þjóðina - eina ferðina enn - en að þessu sinni með dansi í Allir geta dansað. Dansfélagi Bergþórs er engin önnur en Hanna Rún Bazev Óladóttir. Þetta er búið að vera hörð keppni, þar sem metnaðarfullir þátttakendur spreyta sig á nýjum dansi í hverri viku. Sunnudaginn 6. maí fer síðasti þátturinn í loftið og auðvitað er okkar maður einn af keppendum.   Bergþór Pálsson fer heilshugar í öll þau verkefni sem mæta honum; hvort sem það er hlutverk í Íslensku óperunni eða í leikhúsum landsins, að kenna þjóðinni borðsiði og aðra mannasiði, eða að leiðbeina söngnemendum við Söngskólann í Reykjavík. Hann hefur kennt mörgu af okkar flottasta söngfólki, m.a. Ara Ólafssyni sem er að keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision um þessar mundir.   Við óskum Bergþóri og Hönnu Rún góðs gengis á sunnudaginn og hlökkum mikið til að sjá þau stíga lokadansinn. Þetta keppnistímabil er búið að vera líflegt og skemmtilegt fyrir okkur öll  hér í Söngskólanum og við vonum að Bergþór hætti ekki að taka danssporin á kaffistofunni, þótt keppninni ljúki. Kosninganúmerið þeirra er: 900-9002     
Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin:

Mán. – fim. kl. 09:00-15:00

Lokað á föstudögum og um helgar

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING