STAÐUR & STUND

21. mars, 2022

Ástarseiður – hádegistónleikar

Næstkomandi fimmtudag 24. mars mun tríó úr hópi Nornanna flytja tónlist á hádegistónleikum í Fríkirkjunni við Tjörnina.
Flytjendur eru söngkonurnar Svava Kristín Ingólfsdóttir (fyrrverandi nemandi Söngskólans í Reykjvík) og Íris Sveinsdóttir (núverandi nemandi Söngskólans í Reykjavík), og með þeim spilar Sigurður Helgi Oddsson á píanó (kennari við Söngskólann í Reykjavík).

Tónleikarnir hefjast kl. 12:00 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 2.000 ISK.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.

Svava Kristín Ingólfsdóttir og Íris Sveinsdóttir eru meðlimir kvartettsins Nornanna.
Hvað er ást, hvað er þrá? Hvað er sorg, hvað er seiður?
Hvort Kurt Weill, Rossini, Freddi Mercury, Cole Porter eða Benny og Björn hafi haft einhverja hugmynd um það er spurning…
Eitt eiga þeir allir sameiginlegt, ásamt mörgum öðrum, að hafa seitt lög sín þeim töfrum sem aðeins ástin ein getur gert.
Svava og Íris hafa fengið í lið með sér pianósnillinginn Sigurð Helga Oddsson sem mun fylgja nornunum tveimur í gegnum hvern ástarseiðinn á fætur öðrum.

Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin frá 9 – 16 alla virka daga.

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING