Námsleiðir
Framhaldsdeild
Markmið söngnámsins er að kenna og þjálfa nemendur í heilbrigðri raddbeitingu, túlkun og framkomu. Námið er einstaklingsmiðað og þar með getur nemandinn lagt til málanna sitt áhugasvið varðandi verkefnaval og smátt og smátt mótast sá árangur sem leiðir að markmiði, hvort sem það verður betri raddbeiting til hvaða starfs sem er, eða í atvinnumennsku í söng, rytmískan söng eða klassískan. Nemendur fá þjálfun í sviðsframkomu, og öðlast færni í að syngja fyrir áheyrendur, lesa nótur og skilja tónfræði.


„Það besta við Söngskólann í Reykjavík er að mínum mati starfsfólkið. Það er alltaf hægt að leita sér aðstoðar og kennararnir eru allir miklir fagmenn með tölu. Ég hef alltaf fundið fyrir miklum stuðningi, skilningi og hlýju viðmóti í þessum skóla.“
Þórhildur Steinunn Kristinsdóttir
Fyrrverandi nemandi í FramhaldsdeildNÁM Í FRAMHALDSDEILD
6. stig – Fyrri áfangi til Framhaldsprófs – Sjá Aðalnámskrá tónlistarskóla.
Forkröfur:
- Miðprófi í söng lokið
- Miðprófi í tónfræði lokið Verkefnalisti: 21 verkefni
Verkefni eru valin með tilliti til gildandi námskráa Söngskólans, námskrá menntamálaráðuneytisins frá 2002 og námskrá ABRSM frá 2018. Verkefnin skulu vera frá mismunandi stíl-tímabilum og innihalda sönglög, söngva úr leikritum og söngleikjum, aríur úr kantötum, óratoríum, óperettum og óperum. Sungið sé að lágmarki á fjórum tungumálum, þ.e. íslensku og þremur erlendum tungumálum.
Á verkefnalistanum er merkt við 11 verkefni:
- Merkt XX: 3 verkefni ABRSM úr A-B-C-D-E listum
- Merkt X: 6 viðfangsefni af verkefnalista framhaldsnáms – Prófdómari velur 1 þeirra
- VAL : 1 viðfangsefni að vali nemanda
- ÞJÓÐLAG: 1 undirleikslaust (1-3 mín)
Nemandi ræður röð flutnings.
Til að ljúka 6. stigs prófi:
- Söngur 6. stig
- Tónheyrn F1
- Hljómfræði F1
- Tónlistarsaga, eitt ár
7. stig – Seinni áfangi til Framhaldsprófs –
Forkröfur:
- 6. stigi í söng lokið
- Tónheyrn F1 lokið
- Hljómfræði T1 lokið eða í undirbúningi (lokið í tengslum við söngprófið)
- Tveimur áföngum í tónlistarsögu lokið (3. og 4. áfangi sé í undirbúningi)
Verkefnalisti: 21 verkefni
Verkefni eru valin með tilliti til námskrá menntamálaráðuneytisins frá 2002 og námskrá ABRSM frá 2018. Verkefnin skulu vera frá mismunandi stíl-tímabilum og innihalda sönglög, söngva úr leikritum og söngleikjum, aríur úr kantötum, óratoríum, óperettum og óperum. Sungið sé að lágmarki á fjórum tungumálum, þ.e. íslensku og þremur erlendum tungumálum.
Til að ljúka Framhaldsprófi:
- Söngur Framhaldspróf
- Tónheyrn F2
- Hljómfræði F2
- Tónlistarsaga fjórir áfangar – lokapróf
- Hluti af Framhaldsprófinu eru tónleikar
Verkefnalisti: 21 verkefni
Verkefni eru valin með tilliti til gildandi námskráa Söngskólans, námskrá menntamálaráðuneytisins frá 2002 og námskrá ABRSM frá 2018. Verkefnin skulu vera frá mismunandi stíl-tímabilum og innihalda sönglög, söngva úr leikritum og söngleikjum, aríur úr kantötum, óratoríum, óperettum og óperum. Sungið sé að lágmarki á fjórum tungumálum, þ.e. íslensku og þremur erlendum tungumálum.
Á verkefnalistanum er merkt við 11 verkefni:
- Merkt XX: 3 verkefni ABRSM úr A-B-C-D-E listum
- Merkt X: 6 viðfangsefni af verkefnalista til framhaldsnáms – Prófdómari velur 1 af þeim
- VAL: 1 viðfangsefni að vali nemanda
- ÞJÓÐLAG: 1 undirleikslaust (1-3 mín)
Röð flutnings:
- 3 verkefni af ABRSM lista – söngvari ræður röð
- 1 verkefni sem prófdómari velur
- 1 Val – verkefni
- 1 undirleikslaust þjóðlag
