Söngskólinn í Reykjavík

NEMENDATÓNLEIKAR

Nemendatónleikar:

Söngskólinn í Reykjavík stendur fyrir vikulegum tónleikum í tónleikasal skólans að Laufásvegi 49 – 51, alla miðvikudaga kl. 18:00. 

Í byrjun skólaárs fá kennarar skólans úthlutaðan tónleikadag fyrir nemendur sína. Nemendur syngja ýmist einsöng, dúetta og/eða samsöngva eða sviðssettar senur úr óperum eða söngleikjum. Að koma fram á tónleikum er mikilvægur þáttur í söngnámi við Söngskólann í Reykjavík. 

Tónleikarnir eru opnir öllum og aðgangur ókeypis.

Framhaldsprófstónleikar:

Áður en söngnemandi lýkur framhaldsprófi við Söngskólann í Reykjavík þarf hann að halda stutta tónleika, sem hluta af prófinu. 

Burtfaraprófstónleikar:

Áður en söngnemandi lýkur burtfaraprófi við Söngskólann í Reykjavík þarf hann að halda tónleika í fullri lengd, sem hluta af prófinu. 

Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin:

Mán. 11:00-17:00

Þri. 09:00-15:00

Mið. 12:00-17:00

Fim. 11:00-17:00

Fös. 10:00-15:00

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING