Það er okkur mikið gleðiefni að tilkynna að Söngskólinn í Reykjavík mun hefja nýtt skólaár 24. ágúst 2026 á Grensásvegi 3.
Skólinn seldi eignina við Laufásveg 49-51 árið 2024 og hefur leigt húsnæðið síðan þá. Nú býðst okkur spennandi og hagkvæmt tækifæri til þess að fara í sambúð með Nýja tónlistarskólanum á 3. hæð við Grensásveg 3 þar sem eru mjög góðar aðstæður fyrir tónlistarkennslu. Margir nemenda Söngskólans í Reykjavík kannast við húsið, þar sem við höfum haldið ýmsa nemendatónleika og meira og minna æft söngleikina okkar í því húsnæði.
Nýtt fyrirkomulag húsnæðis mun minnka rekstrarkostnað skólans töluvert og gera honum því kleift að LÆKKA SKÓLAGJÖLD að einhverju leyti, í stað þess að hækka þau í takt við verðbólgu landsins. Það er mikið fagnaðarefni að gera skólagjöldin viðráðanlegri, enda er það stefna Söngskólans í Reykjavík að sem flestir geti stundað þar nám. Ný verðskrá skólans hefur nú birst á vefsíðu skólans.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á Grensásvegi 3 í haust!