Hildigunnur Einarsdóttir lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur og Signýjar Sæmundsdóttur og stundaði framhaldsnám í Þýskalandi og Hollandi hjá Janet Williams og Jóni Þorsteinssyni. Hildigunnur hefur einnig lokið B.A. prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands. Hildigunnur stjórnar Árkórnum í Reykjavík og Kvennakórnum Kötlu ásamt Lilju Dögg Gunnarsdóttur og kennir einnig söng við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Söngskólann Domus Vox og hefur haldið námskeið í söng og skapandi tónlistarmiðlun. Hildigunnur hefur verið áberandi í kirkjutónlistarsenunni og sungið einsöngshlutverkin m.a. í Messías og Judas Maccabeus eftir Händel, Mattheusarpassíu, Jóhannesarpassíu og Jólaóratoríunni eftir Bach og Guðbrandsmessu eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Hildigunnur hefur einnig sungið einsöng m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Barokksveitinni Brák, Caput og Kammersveit Reykjavíkur og frumflutt fjölda verka m.a. eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson, Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur, John Speight og Kolbein Bjarnason. Nýlega söng hún dúett með sópransöngkonunni og hljómsveitarstjóranum Barböru Hannigan á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands og tók einnig þátt í verkinu Ritual í Hörpu ásamt hinum heimsfræga sellóleikara Yo-Yo Ma.
Hildigunnur hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2023 fyrir söng ársins í flokknum sígild og samtímatónlist.