2,1 milljón úthlutað til nemenda í Söngskólanum í Reykjavík
Minningarsjóður Guðfreðs Hjörvars Jóhannessonar, í varðveislu Söngskólans í Reykjavík, veitti þriðjudaginn 18. febrúar sjö nemendum skólans styrki upp á 300.000 kr. hver. Alls var 2,1 milljón úthlutað úr sjóðnum.
Á þeim sjö árum sem liðin eru frá stofnun sjóðsins hafa 25 nemendur hlotið styrki úr honum. Styrkþegar að þessu sinni eru:
Aþena Helgadóttir
Bjarni Freyr Gunnarsson
Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir
Ellert Blær Guðjónsson
Jón Marteinn Gunnlaugsson
Laufey Ósk Jóns
Olga María Rúnarsdóttir
Nemendurnir efnilegu, sem hlutu styrkina, komu fram á stuttum tónleikum af þessu tilefni í sal Söngskólans í Reykjavík við Laufásveg. Hrönn Þráinsdóttir, kennari við skólann, lék með á píanó. Stjórn sjóðsins afhenti styrkina í lok tónleikanna og minntist Guðfreðs.
Söngskólinn í Reykjavík hefur í vörslu sinni áðurnefndan sjóð sem er til minningar um Guðfreð Hjörvar Jóhannesson, en hann var starfsmaður og velunnari Söngskólans í Reykjavík um árabil. Sjóðurinn var stofnaður í febrúar 2018 og er stofnandi sjóðsins dánarbú Guðfreðs.
Markmið sjóðsins er að styrkja unga, efnilega nemendur við Söngskólann í Reykjavík og skulu þeir valdir af stjórn sjóðsins, sem nú skipa þau Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Viðar Gunnarsson og Þorvaldur Gylfason.
Guðfreður sagði eftirfarandi í viðtali við Morgunblaðið árið 2017:. „Þar sem ég á engan lögerfingja hef ég í erfðaskrá minni unnið að því að andvirði íbúðar minnar og öðrum fjármunum verði eftir minn dag varið í minningarsjóð fyrir efnilega söngnemendur. Eins og kunnugt er getur verið erfitt fyrir unga listnema að fóta sig fjárhagslega á meðan þeir ljúka námi og ég vil gera mitt til að veita þeim aðstoð, enda útskrifast sægur af hæfileikafólki úr Söngskólanum í Reykjavík.“