Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir sópran tekur í dag þátt, fyrir hönd Söngskólans í Reykjavík, í Konsertkeppni Nótunnar sem fer fram í Tónlistarskóla Garðabæjar. Dagbjört og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari flytja aríuna Spiel’ ich die Unschuld vom Lande úr Die Fledermaus (Leðurblökunni) eftir Johann Strauss. Við óskum Dagbjörtu góðs gengis!
Söngkennari Dagbjartar við Söngskólann í Reykjavík er Harpa Harðardóttir og meðleikari hennar þar er Hrönn Þráinsdóttir.
Konsertkeppni Nótunnar fer fram með tvennum tónleikum:
Tónleikar kl. 10:30
Allegro Suzukitónlistarskóli
Hulda Margrét Hjaltadóttir, fiðla. Meðleikur: Kristinn Örn Kristinsson
John Williams: Theme from Schindlers List
Tónlistarskóli Kópavogs
Hekla Sigríður Ágústsdóttir, trompet. Meðleikur: Herdís Ágústa Linnet
Leroy Anderson: A Trumpeter’s Lullaby
Menntaskóli í tónlist
Hildur Arna Hrafnsdóttir, þverflauta. Meðleikur: Þóra Kristín Gunnarsdóttir
W.A. Mozart: Konsert í G-dúr K313, 1.kafli
Menntaskóli í tónlist
Baldur Þórarinsson, selló. Meðleikur: Hrönn Þráinsdóttir
Edward Elgar: selló konsert í e moll, Op. 85, 1. kafli
Söngskólinn í Reykjavík
Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir, einsöngur. Meðleikur: Hrönn Þráinsdóttir
Spiel’ ich die Unschuld vom Lande úr Die Fledermaus (Leðurblökunni) eftir Johann Strauss
Tónleikar kl. 12:00
Tónskóli Sigursveins
Chadman Naimi, píanó. Meðleikur: Nína Margrét Grímsdóttir
F. Chopin: Píanókonsert nr. 1 í e-moll, 1. þáttur Allegro Maestoso
Tónskóli Sigursveins
Drífa Rán Solimene, fiðla. Meðleikur: Ingunn Hildur Hauksdóttir
M. Ravel: Tzigane op. 76
Tónlistarskóli Garðabæjar
Magdalena Lauth, þverflauta. Meðleikur: Guðrún Dalia Salómonsdóttir
Vivaldi konsert í g moll, op 10 no 2, 439 La Notte, 1. Largo, II fantasmi presto, III Largo, IV allegro, V Il sonno largo, VI allegro
Tónlistarskóli Kópavogs
Margrét Kristjánsdóttir, 16 ára, fiðla. Meðleikur: Guðríður St. Sigurðardóttir
W.A. Mozart: Konsert nr. 5 í A-dúr, K. 219, 1. kafli Allegro aperto

