STAÐUR & STUND

20. janúar, 2026

Lothar Odinius master class

Þýski tenórsöngvarinn og söngkennarinn Lothar Odinius heimsækir Söngskólann í Reykjavík í dag og á morgun. Hann kennir lengra komnum nemendum á master class í Ljóða- og aríudeild þri. 20.1. og í óperudeild skólans mið. 21. janúar 2026.
Lothar er þekktur konsert- og óperusöngvari og hefur hlutverkaskrá hans náð allt frá barokktónlist til nútímatónlistar. Hann hefur verið reglulegur gestur víða um heim í tónleikasölum Berlínar, Vínar, Milano og New York en þar hann söng í hinni þekktu tónleikahöll Carnegie Hall. Á óperusviðinu hefur hann sungið m.a. í Royal Opera House Covent Garden í London, Opera National í París, Semperoper í Dresden og óperunni í Zürich en einnig við óperuhátíðinar í Bayreuth, Ruhrtriennale, Glyndebourne og Schwetzingen.

Hann hefur kennt við Tónlistarháskólann Carl Maria von Weber í Dresden frá árinu 2018 og hafa nemendur hans þaðan náð góðum árangri m.a. við óperustúdíóið í Chemnitz.

Hann hefur haldið masterklassa við Alþjóðlegu Bachakademíuna í Stuttgart og við óperustúdíóið í Wuppertal/Dortmund.

20. janúar, 2026

Lothar Odinius master class

Þýski tenórsöngvarinn og söngkennarinn Lothar Odinius heimsækir Söngskólann í Reykjavík í dag og á morgun. Hann kennir lengra komnum nemendum á master class í Ljóða- og aríudeild þri. 20.1. og í óperudeild skólans mið. 21. janúar 2026. Lothar er þekktur konsert- og óperusöngvari og hefur hlutverkaskrá hans náð allt frá barokktónlist til nútímatónlistar. Hann hefur verið reglulegur gestur víða um heim í tónleikasölum Berlínar, Vínar, Milano og New York en þar hann söng í hinni þekktu tónleikahöll Carnegie Hall. Á óperusviðinu hefur hann sungið m.a. í Royal Opera House Covent Garden í London, Opera National í París, Semperoper í Dresden og óperunni í Zürich en einnig við óperuhátíðinar í Bayreuth, Ruhrtriennale, Glyndebourne og Schwetzingen. Hann hefur kennt við Tónlistarháskólann Carl Maria von Weber í Dresden frá árinu 2018 og hafa nemendur hans þaðan náð góðum árangri m.a. við óperustúdíóið í Chemnitz. Hann hefur haldið masterklassa við Alþjóðlegu Bachakademíuna í Stuttgart og við óperustúdíóið í Wuppertal/Dortmund.
Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin:

Mán. – fim. kl. 09:00-15:00

Lokað á föstudögum og um helgar

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING