Síðasti kennsludagur í Söngskólanum í Reykjavík fyrir jólafrí er föstudagurinn 19. desember 2025.
Fyrsti kennsludagur eftir jólafrí er mánudagurinn 5. janúar 2026.
Verið öll velkomin að syngja saman jólalög miðvikudaginn 17. desember, kl. 17:30-17:45 í garði skólans. Viðburðurinn heitir Sungið undir hlyni. Allar deildir skólans, kennarar og gestir, þar á meðal meðlimir í Karlakór Kópavogs undir stjórn Sigurðar Helga, sameinast í söng. Boðið verður upp á piparkökur og kakó.
Kl. 18:00 fara fram jólatónleikar í sal skólans þar sem nemendur syngja samsöngslög.
Gleðilega hátíð!


