STAÐUR & STUND

24. júlí, 2024

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir ráðin skólastjóri Söngskólans í Reykjavík

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, söngkona, stofnandi og stjórnandi Sönghátíðarinnar í Hafnarborg, hefur verið ráðin nýr skólastjóri Söngskólans í Reykjavík frá og með 1. ágúst næstkomandi.  Hún stundaði söngnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og síðan hjá Lauru Sarti í við hinn þekkta Guildhall School of Music and Drama í London, en þar lauk hún meistaragráðu í söng og tveggja ára óperudeild skólans.

Guðrún Jóhanna hefur komið fram sem einsöngvari á tónleikum vítt og breitt um Evrópu, í Suður-Ameríku, Bandaríkjunum og Afríku í tónleikasölum svo sem Henry le Boeuf Hall í Bozar í Brussel, Auditorio Nacional de Música og Teatro Real í Madrid, Glinka sal Fílharmóníunnar og Belozelsky-Belozersky höllinni í St. Pétursborg, Coliseo í Buenos Aires, Wigmore Hall og Royal Festival Hall í London.

Guðrún hefur verið gjaldkeri og ritari Félags íslenskra tónlistarmanna og hún er núverandi formaður Félags íslenskra söngkennara. Hún var listrænn stjórnandi Kammertónleika á Kirkjubæjarklaustri og tónleikaraðarinnar Syngjandi í Salnum. Guðrún er, ásamt Francisco Javier Jáuregui, stofnandi og listrænn stjórnandi Sönghátíðar í Hafnarborg sem hefur verið haldin árlega síðan árið 2017 og hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins.

Guðrún Jóhanna tekur við starfinu af Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur sem hefur starfað við skólann frá upphafi. Ólöf gegndi stöðu Deildarstjóra söngdeildar áður en hún tók við skólastjórastöðunni árið 2022. Garðar Cortes stofnaði Söngskólann í Reykjavík haustið 1973 og gegndi starfi skólastjóra um árabil þar til hann lét af störfum 20. ágúst 2022 sökum aldurs. Í Söngskólanum í Reykjavík er aðalnámsgrein söngur/raddbeiting. Því námi fylgja ýmis kjarnafög svo sem tónfræði, hljómfræði, tónheyrn, tónlistarsaga og píanó. Kennarar skólans er hópur söngvara, píanóleikara og annara tónlistarmanna með langt nám og jafnvel mikla reynslu að baki og hafa þeir af miklu að miðla.

24. júlí, 2024

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir ráðin skólastjóri Söngskólans í Reykjavík

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, söngkona, stofnandi og stjórnandi Sönghátíðarinnar í Hafnarborg, hefur verið ráðin nýr skólastjóri Söngskólans í Reykjavík frá og með 1. ágúst næstkomandi.  Hún stundaði söngnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og síðan hjá Lauru Sarti í við hinn þekkta Guildhall School of Music and Drama í London, en þar lauk hún meistaragráðu í söng og tveggja ára óperudeild skólans. Guðrún Jóhanna hefur komið fram sem einsöngvari á tónleikum vítt og breitt um Evrópu, í Suður-Ameríku, Bandaríkjunum og Afríku í tónleikasölum svo sem Henry le Boeuf Hall í Bozar í Brussel, Auditorio Nacional de Música og Teatro Real í Madrid, Glinka sal Fílharmóníunnar og Belozelsky-Belozersky höllinni í St. Pétursborg, Coliseo í Buenos Aires, Wigmore Hall og Royal Festival Hall í London. Guðrún hefur verið gjaldkeri og ritari Félags íslenskra tónlistarmanna og hún er núverandi formaður Félags íslenskra söngkennara. Hún var listrænn stjórnandi Kammertónleika á Kirkjubæjarklaustri og tónleikaraðarinnar Syngjandi í Salnum. Guðrún er, ásamt Francisco Javier Jáuregui, stofnandi og listrænn stjórnandi Sönghátíðar í Hafnarborg sem hefur verið haldin árlega síðan árið 2017 og hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins. Guðrún Jóhanna tekur við starfinu af Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur sem hefur starfað við skólann frá upphafi. Ólöf gegndi stöðu Deildarstjóra söngdeildar áður en hún tók við skólastjórastöðunni árið 2022. Garðar Cortes stofnaði Söngskólann í Reykjavík haustið 1973 og gegndi starfi skólastjóra um árabil þar til hann lét af störfum 20. ágúst 2022 sökum aldurs. Í Söngskólanum í Reykjavík er aðalnámsgrein söngur/raddbeiting. Því námi fylgja ýmis kjarnafög svo sem tónfræði, hljómfræði, tónheyrn, tónlistarsaga og píanó. Kennarar skólans er hópur söngvara, píanóleikara og annara tónlistarmanna með langt nám og jafnvel mikla reynslu að baki og hafa þeir af miklu að miðla.
Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin frá 9 – 16 alla virka daga.

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING