Nám sem nýtist í lífi og starfi

Námsleiðir

Söngskólinn í Reykjavík bíður upp á hagnýtt nám í raddbeitingu, túlkun og framkomu. Námið er einstaklingsmiðað þar sem nemandinn ákveður sína stefnu; hvort sem það er stóra óperusviðið, rytmíska sviðið eða heilsusamleg raddbeiting sem nýtist í hvaða starfi sem er. Nokkra miðvikudaga yfir veturinn eru svo nemendatónleikar þar sem nemendur æfa sig í að koma fram. Á hverjum vetri er sett upp Nemendaópera, sýning Söngdeildarinnar og sýning hjá Ungdeildinni

Námið við Söngskólann í Reykjavík skiptist í eftirfarandi deildir:
  • Fornám (6 – 8 ára)
  • Ungdeild (9 – 15 ára)
  • Almenn deild: Grunn-, Mið- og Framhaldsdeild
  • Söngleikjadeild
Námskeið og söngkort við Söngskólann í Reykjavík:
  • 8 vikna söngnámskeið fyrir söngáhugafólk á öllum aldri
  • Söngkort með fyrirfram ákveðnum fjölda af einkatímum í söng (60 mín. eða 30 mín.) með kennara við skólann. Hægt að bæta við tímum eftir þörfum.

Söngnám við Söngskólann í Reykjavík er lykill að góðri raddheilsu sem nýtist í lífi og starfi

Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin:

Mán. – fim. kl. 10:00-16:00

Fös. kl. 10:00-14:00

Lokað um helgar

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING