Söngkennari og sviðshreyfingar

Sibylle Köll

Sibylle Köll stundaði ballett- og tónlistarnám frá sex ára aldri í heimalandi sínu, Austurríki. Hún stundaði dansnám við Hogeschool voor de Kunsten Arnhem í Hollandi. Hún stundaði söngnám við Royal Conservatory The Hague í Hollandi og Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan bæði einsöngvaraprófi og söngkennaraprófi.

Sibylle hefur starfað sem kennari í söngtækni og sviðslistum við Söngskólann í Reykjavík. Hún hefur víða komið fram sem einsöngvari, meðal annars í Íslensku óperunni, með Óperukórnum og við ýmsar kirkjulegar athafnir og tónleika.

Sibylle hefur einnig unnið með Íslenska dansflokknum og kennt nútímajazz og ballet. Þá hefur hún unnið að sviðsetningum með Nemendaóperu Söngskólans, bæði sem danshöfundur og leikstjóri.

Scroll to Top

Hér á síðunni er að finna flest það sem þú þarft að vita um Söngskólann, en ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur. Skrifstofan er opin:

Mán. – fim. kl. 09:00-15:00

Lokað á föstudögum og um helgar

HAFA SAMBAND

SAMFÉLAGSMIÐLAR

STAÐSETNING