Þriðjudagurinn 26. ágúst er fyrsti kennsludagur vetrarins 2025-2026 í Söngskólanum í Reykjavík. Verið velkomin! Inntökupróf fyrir nýja nemendur fara fram föstudaginn 22. ágúst. Próftaki syngur eitt lag, að eigin vali með píanóleikara eða undirleik á upptöku/disk/síma. • Sungið með píanóleikara: Söngskólinn úthlutar píanóleikara, sem æfir lagið með viðkomandi fyrir prófið. Nótur þurfa að liggja fyrir – hægt að leita til skrifstofunnar ef nótur vantar. Eða: • Sungið án píanóleikara: Upptaka af undirleik þarf að vera í tölvu eða síma. Hægt að tengjast hátalara gegnum Bluetooth. Eftir að lagið er sungið eru gerðar nokkrar raddæfingar, til að finna út hvernig röddin liggur og svo er smá tónheyrnarprufa. Það kostar ekkert að fara í inntökupróf. Skólagjöld fyrir veturinn 2025-2026 í Söngskólanum í Reykjavík má sjá hér: https://songskolinn.is/skolinn/skolagjold/

STAÐUR & STUND
20. ágúst, 2025
Fyrsti kennsludagur 26. ágúst